Episodes

3 hours ago
3 hours ago
Við fengum Unni okkar til þess að hlaupa í skarðið fyrir Eyrúnu í þessum þætti og ræða þær Karen um hvaða ofurkraft endókonur geta búið yfir, hvort sem þær séu búnar að átta sig á því eða ekki.
Orkumikill þáttur með húmor og sjálfsstyrkingu.

Wednesday Jun 18, 2025
Wednesday Jun 18, 2025
Þórunn Ívars mætti til okkar í skemmtilegt og einlægt spjall. Þórunn lagði spilin á borðið og segir frá sinni endó sögu, ásamt því að ræða ófrjósemi og meðgöngu. Þrátt fyrir ótrúlega flókna sögu þá er húmorinn ekki langt undan hjá henni sem gerir þetta að ennþá skemmtilegra spjalli.
Við setjum TW á þennan þátt.

Friday Jun 13, 2025
Friday Jun 13, 2025
Þátturinn sem við leyfðum Chat gbt að hjálpa okkur að búa til spurningar, léttur þáttur sem mögulega gerir daginn þinn betri eða kemur með spurningar sem fá þig til að hugsa hvernig þú getur gert daginn betri.

Wednesday Jun 04, 2025
Wednesday Jun 04, 2025
Eydís Sara er mætt aftur, nú deilir hún endósögunni sinni og því að vera ófrísk með endó. Heiðarlegt, einlægt og oft erfitt spjall sem þarf samt sem áður að heyrast.Þátturinn getur verið triggerandi vegna óléttu og átröskunar.

Wednesday May 28, 2025
Wednesday May 28, 2025
Þegar sólin fer að skína léttist lundin og orkan eykst, við með endó gleymum okkur oft í gleðinni og lendum svo á vegg nokkrum sinnum yfir sumarið. Við vinkonurnar töluðum opið um allar tilfinningarnar sem tengjast sumrinu og rútínuleysinu.

Wednesday May 21, 2025
Wednesday May 21, 2025
Kristjana fyrrum ritari endósamtakanna kom í spjall um sína endó vegferð, Kristjana hefur fengið allskyns verkefni í lífinu og tekst á við þau með lausnum og bros á vör. Viðtalið fjallar meðal annars um barneignaferli og gæti stuðað einhvern en á sama tíma heiðarleika um ferlið.

Wednesday May 14, 2025
Wednesday May 14, 2025
Þátturinn sem hefur verið óskað eftir frá okkur, við förum yfir leiðir okkar af vinnumarkaði og á hann aftur. Ræðum hvað hjálpaði okkur og hvað ekki. Vonandi er þetta þátturinn sem svara spurningum um endó og skerta vinnugetu.

Wednesday May 07, 2025
Wednesday May 07, 2025
Í þessum þætti fengum við til okkar hana Sigrúnu Örnu, en hún hefur átt ótrúlega flókna og erfiða Endó sögu. En hún fékk til dæmis endó greininguna sína svo seint að endóið skemmdi hluta líffæra hennar varanlega. Þáttur sem enginn má missa af!

Wednesday Apr 16, 2025

Wednesday Apr 09, 2025
Wednesday Apr 09, 2025
Gestur þáttarins er Alma Sigurðardóttir. Alma er algjör demantur sem á mjög langa og erfiða Endósögu að baki og segir okkur frá henni hér á djúpum og einlægum nótum. Alma er einnig nýkjörin ritari Endósamtakanna og eru samtökin ekkert smá heppin að hafa fengið hana í lið með sér. Alma á reynslu af þurfa að fara í aðgerð erlendis vegna Endó og langa og erfiða baráttu við Sjúkratryggingar.